07.04.11 - 11:13
Magnús Már Einarsson
Goran Jovanovski og Adam Larsson í Keflavík (Staðfest)

Goran og Adam á æfingu hjá Keflavík.

Mynd: Keflavík

Goran og Adam á æfingu hjá Keflavík.

Mynd: Keflavík
Keflvíkingar hafa samið við Makedóníumanninn Goran Jovanovski og Adam Larsson frá Svíþjóð sem hafa verið á reynslu hjá liðinu undanfarna daga.
Hinn þrítugi Goran lék síðast með FC Skopje en hinn 21 árs gamli Adam kemur á láni frá Mjällby.
,,Svíinn kemur á láni frá Mjällby þannig að þeir gætu kallað hann til baka þegar glugginn opnar í sumar en Goran er kominn til að vera í sumar,\" sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.
,,Við þurftum að styrkja okkur varnarlega því við erum búnir að missa sterka pósta þar,\" bætti Willum við en Keflvíkingar hafa meðal annars misst Bjarna Hólm Aðalsteinsson og Alen Sutej úr vörninni síðan á síðasta tímabili.
Haukur Ingi Guðnason mætti einnig á æfingu hjá Keflavík í gær en hann hefur ekkert getað æft með liðinu í vetur.
,,Við fengum eiginlega þrjá nýja leikmenn á æfingu í gær. Hann er að skoða hvað hann getur gert,\" sagði Willum.