Manchester United með of háar kröfur


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Framtíð Jadon Sancho er í mikilli óvissu hjá Manchester United eftir að United hafnaði tilboði sádí-arabíska liðsins Al Ettifaq í leikmanninn.
Sancho lenti upp á kant við Erik ten Hag á dögunum en stjórinn sagði að Sancho hafi ekki staðið sig nógu vel á æfingum til að fá tækifæri í liðinu. Þessi orð fóru illa í leikmanninn sem taldi að eitthvað annað lægi að baki.
Breskir fjölmiðlar greina frá því að sádí-arabíska liðið hafi viljað fá Sancho á láni en United hafi viljað fá 50 milljónir punda fyrir leikmanninn þegar lánssamningi hans lýkur.
Það hafi sett strik í reikninginn og hann mun því vera áfram í herbúðum United. Hann mun ræða við Man Utd í landsleikjahléinu um stöðu sína hjá félaginu.




