Fotbolti.net
07.11.10 - 16:23
Hafliði Breiðfjörð

Jónas Þór Næs í Val (Staðfest)

Kristján Guðmundsson þjálfaði HB í Færeyjum og er nú kominn með tvo færeyska leikmenn í Val auk þess sem sá þriðji er að æfa með liðinu.

Kristján Guðmundsson þjálfaði HB í Færeyjum og er nú kominn með tvo færeyska leikmenn í Val auk þess sem sá þriðji er að æfa með liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn tilkynntu á vef sínum í dag að færeysk-íslenski bakvörðurinn Jónas Þór Næs sé genginn til liðs við félagið frá B36 í Færeyjum en hann er annar færeyingurinn sem kemur til félagsins auk þess sem sá þriðji er að æfa með liðinu.
Jónas 23 ára, fæddur og uppalinn í Færeyjum en móðir hans er íslensk. Hann er færeyskur landsliðsmaður og á að baki 18 A-landsleiki og fjölda U21 leikja.

Jónas kemur frá B36 frá Þórshöfn en lék þar áður með BK Frem í dönsku fyrstu deildinni. Hann fór til Frem árið 2005 og lék svo með Fremad Amager og Köge BK í fyrstu deildinni áður en hann sneri aftur til Frem. Hann hefur einnig leikið með NSÍ Rúnavík og Argja Bóltfélag í Færeyjum þegar danska tímabilinu sleppti.

Jónas er hægri bakvörður og kemur til með að styrkja vörn Vals fyrir næsta tímabil. Samningur hans er til tveggja ára.

Færeyski bakvörðurinn Pól Jóhannus Justinussen samdi við félagið í síðustu viku og þá æfir framherjinn Christian Mouritsen með liðinu á reynslu þessa dagana. Auk þess æfir KR-ingurinn Marteinn Urbancic með Val þessa dagana.

Valur hefur þá fengið til liðs við sig sex leikmenn frá síðustu leiktíð. Færeyingana tvo sem hafa samið, Guðjón Pétur Lýðsson, Halldór Kristinn Halldórsson, Andra Fannar Stefánsson og Hörð Sveinsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.