Fotbolti.net
07.12.10 - 16:24
Hafliði Breiðfjörð

Frans Elvarsson í Keflavík (Staðfest)

Frans Elvarsson í búningi Keflavíkur.

Frans Elvarsson í búningi Keflavíkur.

Canon

Mynd: Keflavík

Frans Elvarsson er genginn í raðir Keflavíkur en þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon formaður, og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Keflavíkur við Fótbolta.net í dag.

Frans Elvarsson getur spilað allar stöðurnar á miðjunni og sem framherji en hann kemur til félagsins frá nágrönnunum í Njarðvík og skrifaði undir þriggja ára samning við Keflavík.
Frans Elvarsson er 20 ára gamall og hóf meistaraflokksferill hjá Sindra árið 2005 þar sem hann spilaði 18 leiki í deild og bikar á tveimur tímabilum.

Hann fór til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2007 og hefur leikið 84 leiki og skorað fjögur mörk. Hann spilaði 23 leiki með liðinu í deild og bikar í sumar.

Frans á að baki 11 leiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.