Fotbolti.net
08.01.11 - 11:15
Hafliði Breiðfjörð

Roy Hodgson hættur með Liverpool - Dalglish tekur við (Staðfest)

Roy Hodgson er hættur með Liverpool.

Roy Hodgson er hættur með Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Roy Hodgson er hættur sem knattspyrnustjóri Liverpool eftir samkomulag við félagið. Kenny Dalglish tekur tímabunið við liðinu út tímabilið og stýrir liðinu í fyrsta sinn í stórleiknum gegn Manchester Unitd í bikarnum á morgun.

Undir stjórn Hodgson sem er 63 ára Englendingur vann Liverpool aðeins sjö af 20 leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en hann tók við liðinu í sumar af Rafael Benítez. Liðið er í 12 sæti deildarinnar, fimm stigum frá botnsætinu.
,,Við erum þakklátir fyrir framlag Roy undanfarna sex mánuði en báðir aðilar töldu það best fyrir hargsmuni félagsins að hann hætti sem stjóri liðsins. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni,\" sagði John Henry eigandi Liverpool á vef félagsins í morgun.

,,Við erum hæstánægðir með að Kenny Dalglish hefur samþykkt að koma inn og stýra liðinu í bikarleiknum á sunnudag á Old Trafford og út tímabilið. Kenny var ekki bara goðsögn sem fótboltamaður, hann var þriðiji af þremur farsælustu stjórum okkar, þrír risar. Við erum ótrúlega heppnir og þakklátir að hann h efur ákveðið að taka við á miðju tímabili.\"

Á vef Liverpool er einnig rætt við Roy Hodgson sem nú hættir með liðinu eftir að hafa tekið við í sumar. ,,Það voru frábær forréttindi að vera beðinn að stýra knattspyrnufélaginu Liverpool,\" sagði hann.

,,Hverjum einasta stjóra hefði verið heiður að stýra félagi með svona ótrúlega sögu, eins og svona mikla arfleifð og ótrúlega stuðningsmenn. Livberpool er eitt af stærstu félögum í heimsfótboltanum.\"

,,Ég hef hinsvegar fundið fyrir minni stærstu áskorun á ferli mínum undanfarna mánuði. Mér þykir leiðinlegt að hafa ekki getað sett mitt mark á hópinn, að hafa ekki fengið tíma til að fá inn nýja leikmenn í félagaskiptaglugganum núna og að hafa gefið fengið að taka þátt í endurbyggingu Liverpool.\"

,,Félagið er með frábæra heimsklassa leikmenn sem hefur verið heiður að vinna með og ég óska öllum hópnum alls hins besta út tímabilið. Ég vil þakka þeim sem ég hef náð frábæru vinnusambandi við hjá félaginu fyrir tryggð þeirra og stuðning á mjög erfiðum tímum og að lokum öllum stuðingsmönnum Liverpool fyrir ástríðuna og trúnna á félaginu sem setur Liverpool enn einu sinni á toppinn í leiknum.\"


Tom Werner formaður félagsins tjáði sig einnig á vef Liverpool í dag og sagði: ,,Enginn sem hefur umhyggju fyrir þessu frábæra félagi hefur verið ánægður með hvernig þetta tímabil hefur farið og við höfum skoðað möguleika okkar og lengi skoðað hvað er best svo við náum áfram. Kenny mun færa okkur verulega reynslu í stðuna og koma með stjórnun og leiðtogahæfni út tímabilið.\"

Heimild: BBC | Vefur Liverpool

Kenny Dalglish er nýr stjóri Liverpool út þessa leiktíð.

Kenny Dalglish er nýr stjóri Liverpool út þessa leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.