08.01.11 - 16:02
Ívan Guðjón Baldursson
Fiorentina kaupir brasilískan markvörð (Staðfest)

Sebastien Frey er aðalmarkvörður Fiorentina.

Mynd: Getty Images

Frey.

Fiorentina hefur staðfest kaupin á brasilíska markverðinum Neto frá Atletico Paranaense. Neto er búinn að skrifa undir fimm ára samning og er kaupverðið talið vera kringum 3 milljónir evra.
Neto er 21 árs gamall og er fenginn til liðsins sem varamarkvörður fyrir Sebastien Frey og Artur Boruc sem hafa báðir átt við meiðsli að stríða þessa leiktíð.

Fiorentina hefur gengið illa á þessari leiktíð og er liðið aðeins fimm stigum frá fallsæti, en þó 6 stigum frá Evrópusæti í þessum þétta pakka sem ítalska deildin er orðin.
Neto heitir fullu nafni Norberto Murara Neto og er talinn einn af bestu ungu markvörðum Brasilíu. Hann var í landsliðshóp Brasilíu eftir HM 2010 undir stjórn Mano Menezes og er talinn vera framtíðarstjarna þar í landi.