08.03.11 - 20:31
Magnús Már Einarsson
Kris Boyd til Nottingham Forest (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nottingham Forest hefur fengið Kris Boyd framherja Middlesbrough á láni út tímabilið.
Markvörðurinn Paul Smith fer í staðinn til Middlesbrough á láni en hann á að fylla skarð Jason Steele sem er meiddur.
Boyd, sem er 27 ára, kom til Middlesbrough frá Rangers síðastliðið sumar en hann hefur ekki náð að finna sig hjá Boro.
Billy Davies, stjóri Nottingham Forest, vonast þó til að Boyd geti hjálpað liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina en sem stendur er Forest í fimmta sæti í Championship deildinni.
Boyd skoraði 26 mörk með Rangers á síðasta tímabili en hann er markahæsti leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.

Heimild: BBC