Fotbolti.net
08.03.11 - 16:28
Magnús Már Einarsson

Elvar Lúðvík í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Elvar Lúðvík í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Dalvík/Reynir úr annarri deild hefur fengið varnarmanninn Elvar Lúðvík Guðjónsson til liðs við sig.
Elvar Lúðvík yfirgaf ÍR á dögunum en hann hefur verið á mála hjá Breiðhyltingum síðan árið 2005.

Þessi 29 ára gamli leikmaður var meðal annars fyrirliði ÍR-inga um tíma en í fyrra lék hann þrettán leiki með liðinu í fyrstu deildinni.

Elvar Lúðvík er uppalinn hjá Val en auk ÍR hefur hann verið á mála hjá Víkingi R. hér á landi.

Félagaskipti Elvars ættu að ganga í gegn á morgun þannig að hann getur leikið með liðinu gegn Leikni Fáskrúðsfirði í Lengjubikarnum um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.