08.04.11 - 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Friðrik Ingi Þráinsson á lán í Hött (Staðfest)

Friðrik Ingi í baráttunni í bikarleik gegn Val árið 2009.

Mynd: Úr einkasafni

Friðrik Ingi Þráinsson leikmaður Fylkis er farinn á lán til Hattar á Egilsstöðum og mun hann spila með liðinu á komandi sumri.
Friðrik Ingi er miðjumaður uppalinn hjá Árbæjarfélaginu og skoraði hann meðal annars mark í sigri liðsins gegn FH í bikarúrslitum hjá öðrum flokki árið 2009.
Auk þess var hann í úrvalsliði Reykjavíkur á Borgaraleikunum í Coventry árið 2005, en liðið varð það fyrsta frá Íslandi til að vinna þetta mót, sem heitir á ensku International Children\'s Games.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Friðrik Ingi fer á lán frá Fylki en hann mun búa á Egilsstöðum í sumar og æfa með Hetti.