08.04.11 - 17:27
Magnús Már Einarsson
Stefan Stanisic í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR, úr fyrstu deild, hefur fengið markvörðinn Stefan Stanisic til liðs við sig.
Stefan er sonur Rajko Stanisic sem er markvarðarþjálfari hjá Val en hann var áður þjálfari hjá Keflavík.
Þessi tvítugi leikmaður lék með Keflavík í yngri flokkunum en hann hefur síðan leikið með Klepp IL í Noregi frá því árið 2009.
Stefan mun standa í markinu í næstu leikjum ÍR þar sem Þorsteinn Einarsson er puttabrotinn og óvíst er hvenær hann snýr aftur. Þeir munu síðan berjast um sæti í byrjunarliðinu í sumar.
,,Hann er hugsaður til að koma og keppa við Steina um stöðuna,\" sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR við Fótbolta.net.