Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 13:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jimenez yfirgefur Fulham (Staðfest) - Sá besti með samning á borðinu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mexíkóski framherjinn Raul Jimenez er einn af þeim sem mun yfirgefa Fulham í sumar en samningur hans er að klárast og fær hann ekki nýjan samning hjá félaginu.

Annar leikmaður sem er með lausan samning, Harry Wilson, hefur fengið tilboð frá félaginu, en óvíst er hvað hann mun gera.

Wilson átti frábært tímabil og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Marco Silva, sem er að taka við Benfica, vill fá hann með sér til Portúgals og þá hafa Aston Villa, Leeds og Everton einnig áhuga á því að fá velska kantmanninn.

Jimenez er 35 ára og skoraði hann 31 mark í 115 leikjum í öllum keppnum með Fulham. Hann kom til Fulham frá Wolves árið 2023. Hann er á leið á HM með mexíkóska landsliðinu.

Wilson er uppalinn hjá Liverpool og hefur verið hjá Fulham síðan 2022. Hann hefur skorað 36 mörk í 187 leikjum fyrir félagið í öllum keppnum.


Slapp
banner
banner
banner