Fotbolti.net
08.11.10 - 18:48
Alexander Freyr Tamimi

Grétar Ólafur Hjartarson í Keflavík (Staðfest)

Grétar Ólafur er genginn til liðs við Keflavík.

Grétar Ólafur er genginn til liðs við Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Ólafur Hjartarson er genginn til liðs við Keflavík frá Grindavík, en þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 rétt í þessu. Skrifaði hann undir eins árs samning við félagið.
Grétar Ólafur hefur lengst af á sínum ferli leikið með Grindavik en hann yfirgaf herbúðir félagsins í síðasta mánuði.

Grétar kom við sögu í 20 leikjum hjá Grindavík í sumar en hann kom þangað árið 2008 frá KR.

Hann var meiddur sumarið 2009 og spilaði ekkert með liðinu.

Þetta var í þriðja sinn sem hann var í herbúðum Grindavíkur en hann fór til KR árið 2004 frá Grindavík en kom aftur árið 2008.

Hann hefur spilað 170 leiki fyrir Grindavík og KR og skoraði í þeim 72 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.