08.12.10 - 18:29
Hafliði Breiðfjörð
Hörður Sigurjón Bjarnason í Víking (Staðfest)

Hörður skrifar undir samninginn við Víking í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Sigurjón Bjarnason er genginn til liðs við Víking að nýju en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag og kemur frá Þótti þar sem hann lék í fyrra.
Hörður getur leikið bæði á kantinum og í bakverði en hann var á mála hjá Víkingi frá 2005-2008.
Eftir stutt stopp hjá uppeldisfélagi sínu Breiðablik síðari hluta sumars 2008 lék Hörður nokkra leiki með Berserkjum í þriðju deildinni árið 2009.
Í sumar lék Hörður síðan með Þrótti í fyrstu deildinni en nú er ljóst að hann verður ekki áfram þar.
Þessi 29 ára gamli leikmaður skoraði fimm mörk í nítján leikjum með Þrótti en alls hefur hann skorað 24 mörk í 151 deildar og bikarleik á ferlinum.
Rætt verður við Hörð í sjónvarpi Fótbolta.net síðar í kvöld.