09.02.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Francis Jeffers til Motherwell (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Skoska félagið Motherwell hefur gert samning við enska framherjann Francis Jeffers.
Þessi þrítugi leikmaður samdi við Motherwell út tímabilið en hann kemur frítt til félagsins.
Jeffers lék síðast með Newcastle Jets í Ástralíu en hann stoppaði stutt við þar.

Jeffers lék á sínum tíma með Everton og Arsenal og árið 2003 var hann í enska landsliðinu.
Síðan hefur leiðin bara legið niður á við hjá leikmanninum en hann var á mála hjá Sheffield Wednesday á síðasta ári áður en hann fór til Ástralíu.

Heimild: Sporting Life