09.02.11 - 14:19
Magnús Már Einarsson
Bernard Mendy semur við Rúrik og félaga í OB (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Rúrik Gíslason og félagar í OB í Danmörku hafa fengið góðan liðsstyrk því félagið hefur samið við Bernard Mendy.
Mendy getur leikið bæði í hægri bakverði og á hægri kanti og Rúrik gæti því lent í samkeppni við hann um stöðu í byrjunarliðinu.
Hinn 29 ára gamli Mendy lék með Hull í tvö ár áður en hann varð samningslaus síðastliðið sumar.
Mendy lék einnig með Bolton og PSG á sínum tíma en hann á fjóra landsleiki að baki með Frökkum.
OB er í öðru sæti dönsku deildarinnar sem stendur, 19 stigum á eftir toppliði FC Köbenhavn og tveimur stigum á undan Bröndby.

Heimild: Bold.dk