09.02.11 - 20:08
Magnús Már Einarsson
Leeds fær Lichaj á láni frá Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds United hefur fengið varnarmanninn Erik Lichaj á láni frá Aston Villa í einn mánuð.
Þessi 22 ára gamli Bandaríkjamaður lék sinn fyrsta leik með aðalliði Aston Villa í ágúst og síðan þá hefur hann komið við sögu í sjö leikjum.

Lichaj gæti farið beint inn í leikmannahóp Leeds fyrir leikinn gegn Bristol City á laugardag.
Leeds er að berjast um að komast upp í ensku úrvalsdeildina en liðið er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar með 49 stig, þremur stigum á eftir Nottingham Forest í öðru sætinu.

Heimild: Sporting Life