09.03.11 - 11:13
Hafliði Breiðfjörð
Andri Marteinsson tekur við Víkingi (Staðfest)

Andri Marteinsson skrifar undir samninginn við Víking nú rétt í þessu. Hann tekur við starfinu af Leifi Garðarssyni sem var vikið úr starfi í síðustu viku.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Marteinsson er nýr þjálfari Víkings en þetta var staðfest á fréttamannafundi í Víkinni rétt í þessu. Andri tekur við starfinu af Leifi Garðarssyni sem var rekinn frá félaginu í síðustu viku.
Andri skrifaði undir þriggja ára samning um þjálfun Víkings en honum til aðstoðar verður Ólafur Ólafsson sem aðstoðaði Leif áður.
Andri Marteinsson er 46 ára gamall fyrrverandi leikmaður Víkings. Hann hefur þjálfað Hauka undanfarin fjögur ár og fór með liðið úr 2. deild í þá efstu á þeim tíma sem hann þjálfaði liðið. Liðið féll svo úr Pepsi-deildinni í haust.
,,Það gleður okkur mikið að Andri er að koma heim og að hafa náð niðurstöðu með Andra. Jafnframt þökkum við Haukunum kærlega fyrir mjög góða vinnu í þessu máli,\" sagð Björn Einarsson formaður Víkings við þetta tilefni.
,,Í dag erum við að slá botninn í óvissu sem hefur verið í viku og hófst á fimmtudag þegar Leifi Garðarssyni var vikið úr starfi. Samt sem áður þökkum við Leifi fyrir framlag sitt til félagsins en við töldum rétt að Leifur myndi skilja á þessum tímapunkti. Andri er að koma heim, hann er uppalinn Víkingur og var frábær knattspyrnumaðurá sínum tíma með okkur.\"