09.03.11 - 12:39
Hafliði Breiðfjörð
Magnús Gylfason tekur við Haukum (Staðfest)

Magnús skrifar undir samninginn í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús skrifar undir samninginn í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Gylfason var rétt í þessu tilkynntur sem þjálfari meistaraflokks Hauka í knattspyrnu til næstu þriggja ára.
Magnús tekur við af Andra Marteinssyni sem hefur tekið við stjórn Víkings. En Magnús hefur einmitt þjálfað Víkinga sem og KR og ÍBV, Magnús hefur einnig þjálfað yngri landslið Íslands.
Í yfirlýsingu Hauka þakkar félagið Andra Marteinssyni þjálfara félagsins fyrir frábært starf en hann er tekinn við þjálfun Pepsi-deildar félags Víkings.
,,Það er metnaðarfullt starf í knattspyrnunni á Ásvöllum og uppbygging undanfarinna áraa miðar að því að félagið tryggi sér framtíðarveru sína í úrvalsdeildinni,\" sagði í yfirlýsingu félagsins.
,,Þetta er þolinmótt verkefni og með ráðningu Magnúsar eru Haukamenn sannfærðir um að félagið hafi færst einu skrefi nær þessu markmiði.\"