09.11.10 - 16:00
Magnús Már Einarsson
Ole Gunnar Solskjaer tekur við Molde (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjaer, fyrrum framherji Manchester United, hefur verið ráðinn þjálfari Molde í Noregi.
Solskjaer, sem er 37 ára, kom til Manchester United frá Molde á 1,5 milljón punda árið 1996.
Hann skoraði 126 mörk í 366 leikjum með Manchester United og skoraði meðal annars sigurmarkið í úrslitaleikur Meistaradeildarinnar árið 1999.
Árið 2008 tók Solskjaer síðan við þjálfun varaliðs Manchester United en hann er nú hættur þar til að taka við Molde af Uwe Rösler sem hætti eftir tímabilið sem kláraðist um helgina.
,,Þetta er draumastarf. Ég ræddi framtíð mína við Sir Alex (Ferguson) og hann ráðlagði mér að velja félag þar sem væri fólk sem ég myndi vilja vinna með,\" sagð Solskjaer.
,,Þetta vegna var þetta auðvelt val. Eftir 14 ár í Manchester hlakka ég til að koma heim til Molde.\"

Heimild: BBC