Fotbolti.net
09.12.10 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Hörður Árnason í Stjörnuna (Staðfest)

Hörður Árnason í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

Stjarnan hefur fengið varnarmanninn Hörð Árnason til liðs við sig frá HK en hann kemur til félagsins á láni.
Hörður, sem er 21 árs, hefur átt fast sæti í liði HK undanfarin þrjú ár og varla misst úr leik. Hörður hefur ýmist leikið sem miðvörður eða vinstri bakvörður en hann getur einnig leikið framar á vellinum.

Síðastliðið sumar lék Hörður alla 22 leiki HK í fyrstu deildinni og skoraði í þeim eitt mark.

,,Þetta styrkir hópinn og það er gott mál að fá hann,” sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar við Fótbolta.net.

,,Þetta er góður liðsauki og við bindum vonir við að hann stigi gott skref fram á við í úrvalsdeildinni.”

Á dögunum samdi Stjarnan einnig við markvörðinn Ingvar Jónsson en býst Bjarni við frekari liðsstyrk?

,,Það er ekki í deiglunni núna. Við verðum að sjá til hvort að styrking á liðinu verði meiri. Þessi íslenski markaður er frekar þröngur þannig að það er mjög líklegt að við leitum út fyrir landsteinana.”
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.