10.01.11 - 11:20
Magnús Már Einarsson
Steve Clarke ráðinn aðalliðsþjálfari hjá Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve Clarke, fyrrum aðstoðarstjóri Chelsea, West Ham og Newcastle, var í dag ráðinn aðalliðsþjálfari hjá Liverpool.
Kenny Dalglish tók við Liverpool af Roy Hodgson um helgina og hann var fljótur að fá Clarke inn í þjálfaraliðið.
,,Steve er frábær viðbót við þjálfaralið okkar og ég er ánægður með að fá hann til félagsins,\" sagði Dalglish.
,,Ég hlakka til að vinna með Steve og Sammy Lee (aðstoðarstjóra) sem og öðrum starfsmönnum okkar.\"
Clarke var hluti af þjálfaraliði Chelsea þegar liðið varð tvívegis enskur meistari undir stjórn Jose Mourinho.
Síðast var Clarke aðstoðarstjóri West Ham en hann hætti þar síðastliðið sumar í kjölfar þess að Gianfranco Zola var rekinn.

Heimild: Sporting Life