10.01.11 - 15:33
Magnús Már Einarsson
Kristján Sigurólason í Þór (Staðfest)
Leita að framherja erlendis frá

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór hefur fengið varnarmanninn Kristján Sigurólason til liðs við sig frá Stryn í Noregi. Þetta staðfesti Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs í samtali við Fótbolta.net í dag.
Kristján er uppalinn Þórsari en hann gekk til liðs við Stryn í desember árið 2008.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hafði áður leikið með meistaraflokki Þórs frá 2006-2008.
Hann lék alls sextán leiki með Þór í fyrstu deildinni árið 2008 en samtals hefur hann leikið 58 deildar og bikarleiki með liðinu.
Þórsarar munu leika í Pepsi-deildinni í sumar og þessa stundina er félagið að horfa út fyrir landsteinana í leit að framherja en einhverjir leikmenn gætu komið á reynslu á næstu vikum.
Auk Kristjáns hafa Þórsarar fengið Srdjan Rajkovic frá Fjarðabyggð og Inga Frey Hilmarsson frá Ardal eftir að síðasta tímabili lauk.