Fotbolti.net
10.01.11 - 16:00
Hafliði Breiðfjörð

Dóra María Lárusdóttir í Djurgården (Staðfest)

Dóra María Lárusdóttir er að ganga til liðs við Djurgården í sænsku deildinni.

Dóra María Lárusdóttir er að ganga til liðs við Djurgården í sænsku deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Dóra María Lárusdóttir er gengin til liðs við sænska félagið Djurgården en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Dóra María var besti leikmaður Pepsi-deildarinnar í sumar og varð Íslands- og bikarmeistari með Val.

Fleiri félög sýndu henni áhuga en hún hafnaði spænsku félögunum Rayo Vallecano og Sporting de Huelva og valdi að fara heldur til Svíþjóðar þar sem hún samdi við Djurgården.

Hún sagði við Fótbolta.net í dag að hún hafi samið við Djurgården út komandi leiktíð og flytur til Svíþjóðar um næstu mánaðarmót.

Hjá Djurgården hittir hún fyrir Guðbjörgu Gunnarsdóttur markvörð sem lék áður með henni í Val og landsliðinu. Auk hennar hefur Guðrún Sóley Gunnarsdóttir verið á mála hjá félaginu en hún missti af allri síðustu leiktíð vegna höfuðmeiðsla sem hún hlaut á Evrópumótinu 2009.

Dóra María Lárusdóttir er 25 ára gömul. Hún hefur átt sæti í íslenska landsliðshópnum síðan árið 2003 og leikið 64 leiki og skorað 11 mörk. Hún hefur leikið 135 leiki í efstu deild kvenna og skorað í þeim 69 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.