Fotbolti.net
10.02.11 - 10:31
Magnús Már Einarsson

Shefki Kuqi til Newcastle (Staðfest)

Shefki Kuqi til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur gert samning við framherjann Shefki Kuqi en samningurinn gildir út tímabilið.

Þessi 34 ára gamli leikmaður kemur frítt til Newcastle eftir að hafa yfirgefið Swansea í síðasta mánuði.
Alan Pardew, stjóri Newcastle, hefur verið í leit að framherja síðan Andy Carroll fór til Liverpool.

Pardew sýndi Jeremie Aliadiere einnig áhuga en Kuqi þótti betri kostur þar sem hann er í leikæfingu og getur komið beint inn í liðið.

Kuqi mun núna berjast við Peter Lovenkrands, Nile Ranger og Leon Best um sæti í byrjunarliðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.