Fotbolti.net
10.02.11 - 15:25
Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Mallori Lofton Malachi til Þróttar (Staðfest)

Þrír bandarískir markmenn komnir í kvennalið í febrúar

Kvennalið Þróttar hefur fengið liðsstyrk í bandaríska markverðinum Mallori Malachi. Hún er þriðji bandaríski markvörðurinn sem kemur í kvennaboltann í febrúar.l

Kvennalið Þróttar hefur fengið liðsstyrk í bandaríska markverðinum Mallori Malachi. Hún er þriðji bandaríski markvörðurinn sem kemur í kvennaboltann í febrúar.l

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Bandarískir markmenn halda áfram að flykkjast í íslensku kvennaliðin því Mallori Lofton Malachi var að ganga til liðs við Þrótt og er þriðji bandaríski markvörðurinn sem kemur í kvennalið í vikunni.
Mallori er 23 ára gömul, er um 180 cm há, og kemur frá Fíladelfíu ríki. Árin 2006 til 2009 lék hún í Bandaríska háskólaboltanum með University of South Florida við góðan orðstír og var meðal annars talinn meðal öflugustu markmanna í Bandaríska háskólaboltanum.

Árið 2008 var hún valinn besti markmaðurinn í United Women’s Soccer Leagues. Eftir að hún kláraði háskóla var Mallori á mála um tíma hjá Philadelpia Independence í Bandarísku atvinnumannadeildinni en fór svo til Atlanta Beat 2010 þaðan sem hún kemur til liðs við Þrótt.

Í tilkynningu frá Þrótti kemur fram að liðið verði styrkt enn frekar á næstunnik.

,,Liðið mun verða styrkt verulega fyrir sumarið og á næstu dögum munu koma frekari fréttir af því. Samningur hefur verið undirritaður við Mallori Lofton Malachi, sem er fyrsta skrefið í þá átt,\" sagði í yfirlýsingunni.

Áður höfðu kvennalið Vals og Stjörnunnar fengið til liðs við sig bandaríska markverði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.