10.02.11 - 16:17
Magnús Már Einarsson
Eyjólfur Sverrisson ráðinn aðstoðarþjálfari Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eyjólfur Sverrisson hefur formlega verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá þýska félaginu Wolfsburg en frá þessu var gengið í dag.
Eyjólfur mun samhliða halda áfram að þjálfa U21 árs landslið Íslands sem fer á EM í Danmörku í sumar.

Hjá Wolfsburg mun Eyjólfur aðstoða Pierre Littbarski út tímabilið en hann tók við þjálfun liðsins Steve McClaren fyrr í vikunni.
McClaren fékk að taka pokann sinn eftir tap gegn Hannover um síðustu helgi en Wolfsburg er sem stendur í tólfta sæti deildarinnar, stigi frá falli.
,,Þetta er áskorun fyrir mig og ég hlakka til að vinna með Pierre Littbarski, þjálfaraliðinu og leikmönnum,\" sagði Eyjólfur í dag.
,,Ég vil hjálpa Vfl (Wolfsburg) að komast aftur á skrið.\"
Eyjólfur þekkir mjög vel til í þýska boltanum en hann lék með Stuttgart frá 1990-1994 og Hertha Berlin frá 1995-2003.
Hann fór í viðræður við Wolsburg í gær en Dieter Honess framkvæmdastjóri félagsins þekkir Eyjólf vel síðan á tíma hans hjá Stuttgart og Hertha Berlin.

Heimild: Kicker