10.03.11 - 13:34
Magnús Már Einarsson
Brynjar Benediktsson í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
ÍR hefur fengið sóknar og miðjumanninn Brynjar Benediktsson á láni frá FH.
Brynjar var í fyrra í láni hjá nágrönnum ÍR í Leikni þar sem hann skoraði þrjú mörk í nítján leikjum í fyrstu deildinni.
Þessi 21 árs gamli leikmaður er uppalinn hjá FH en hann lék fimm leiki með liðinu í Pepsi-deildinni sumarið 2009.
Brynjar er kominn með leikheimild með ÍR en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Haukum í Lengjubikarnum í kvöld.
Þá hafa ÍR-ingar einnig fengið markvörðinn Ásgeir Kára Ásgeirsson frá FH en hann var að ganga upp úr öðrum flokk síðastliðið haust.