10.03.11 - 17:24
Magnús Már Einarsson
Denis Cardaklija í Fram (Staðfest)

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson

Mynd: Gunnar Stígur Reynisson
Framarar hafa samið við markvörðinn Denis Cardaklija en hann kemur til félagsins frá Sindra.
Þessi 23 ára gamli markvörður hefur staðið á milli stanganna hjá Sindra síðan árið 2007 en hann lék reyndar einn leik bæði sumarið 2005 og 2006.
Alls hefur Denis leikið 62 deildar og bikarleiki með Sindramönnum.
Faðir hans er vítabaninn Hajrudin Cardaklija sem stóð á milil stanganna hjá Leiftri, Breiðabliki og Sindra á árum áður.
Denis mun berjast við Ögmund Kristinsson um markvarðarstöðuna hjá Fram en hinn 21 árs gamli Ögmundur hefur varið mark liðsins í vetur eftir að Hannes Þór Halldórsson fór í KR.