Fotbolti.net
10.03.11 - 18:01
Magnús Már Einarsson

Íslandsmeistari í hnefaleikum í Tindastól/Hvöt (Staðfest)

Íslandsmeistari í hnefaleikum í Tindastól/Hvöt (Staðfest)
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Tindastóll/Hvöt hefur fengið framherjann Kolbein Kárason til liðs við sig á láni frá Val. Gengið var frá lánssamningum í vikunni en við sama tækifæri skrifaði Kolbeinn undir nýjan samning við Val til ársins 2012.
Kolbeinn, sem verður tvítugur á árinu, gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Í vetur hefur hann komið við sögu hjá Val í Reykjavíkurmótinu og í Lengjubikarnum. Þessi hávaxni leikmaður hefur ekki einungis verið í fótboltanum því hann varð einnig Íslandsmeistari í yfirþungavigt pilta í hnefaleikum í fyrra.

,,Ég hætti í fótbolta fyrir miðárið í 2. flokki og byrjaði að æfa box. Svo byrjaði ég aftur í fótbolta í ágúst í fyrra sumar. Ég varð Íslandsmeistari í boxi í apríl og keppti aðeins eftir það,\" sagði Kolbenn við Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.