10.04.11 - 10:21
Hafliði Breiðfjörð
Louis van Gaal rekinn frá FC Bayern (Staðfest)

Lous van Gaal er hættur með FC Bayern.

Mynd: Getty Images

Lous van Gaal er hættur með FC Bayern.

Mynd: Getty Images

Þýska félagið FC Bayern Munchen staðfesti í morgun að félagið hafi rekið Louis van Gaal þjálfara liðsins úr starfi og hann hætti strax.
Áður hafði verði ákveðið að Hollendingurinn myndi hætta með liðið í sumar en nú hefur verið ákveðið að láta hann fara strax enda félagið í vandræðum með að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Van Gaal gerði liðið að meisturum á síðustu leiktíð sem var hans fyrsta hjá félaginu auk þess sem liðið komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Andries Jonker aðstoðarmaður hans mun stýra liðinu út tímabilið en þá tekur Jupp Heynckes við starfinu.
Kornið sem fyllti mælinn hjá Van Gaal var 1-1 jafntefli gegn Nürnberg í gær en eftir leikinn fundaði stjórn félagsins og íþróttastjóri um framhaldið þar sem þessi ákvörðun var tekin.
,,Stjórnin, íþróttastjórinn og forseti FC Bayern tóku þessa ákvörðun saman,\" sagði í yfirlýsingu félagsins. ,,Eftir 1-1 jafntefli í Nürnberg í gær og að detta aftur niður í fjórða sæti töflunnar, og með þá ógn að missa af því lágmarksmarkmiði að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð, var ákvörðunin tekin með hagsmuni FC Bayern í huga. Frans Hoek, Jos van Dijk og Max Reckers aðstoðarmenn Louis van Gaal hafa einnig verið leystir frá skyldum sínum.\"
Bayern er stigi á eftir Hannover sem er í þriðja sæti í þýsku deildinni en ef það endar þannig munu þeir spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð fer fram á heimavelli þeirra og ef svo fer myndu þeir ekki eiga möguleika á að keppa um að spila leikinn á heimavelli.

Heimild: Sporting Life