10.11.10 - 07:03
Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Elías tekur við Ægi (Staðfest)

Alfreð Elías eftir undirskriftina við Ægi.

Mynd: Aðsend

Alfreð Elías Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari 3. deildarliðs Ægis frá Þorlákshöfn. Alfreð Elías hóf þjálfaraferil sinn fyrir ári síðan þegar hann tók við liði BÍ/Bolungarvíkur í 2. deildinni.
Hann náði frábærum árangri með liðið sem tryggði sér sæti í 1. deild næsta sumar eftir að hafa endað í 2. sæti 2. deildar. Þrátt fyrir það ákvað félagið að skipta um þjálfara og Guðjón Þórðarson tók við starfi hans. Alfreð Elías skrifaði svo undir tveggja ára samning við Ægi í gærkvöld.
,,Þetta er búið að eiga langan aðdraganda. Þeir hringdu í mig fyrir fjórum vikum, ég var búinn að vera í sambandi við önnur lið en mér fannst þetta mest spennandi hjá Ægi,\" sagði Alfreð Elías við Fótbolta.net í gær.
,,Öll umgjörðin og metnaðurinn hjá stjórnarmönnum heillaði mig. Þeir ætla að koma liðinu upp og mér líst vel á það.\"
,,Ég þekki voðalega lítið inn á leikmannahópinn en hef heyrt að þetta séu ungir og efnilegir strákar og reynsluboltar inn á milli sem við ætlum að byggja á,\" sagði hann.
Alfreð Elías spilaði sjálfur með BÍ/Bolungarvík í byrjun síðustu leiktíðar en varð svo fyrir því óhappi að slíta krossband í hné. En spilar hann ekki með Ægi?
,,Maður veit aldrei. Eigum við ekki að segja að ég nái kannski einum leik ef hnéð leyfir,\" sagði Alfreð Elías að lokum.