Fotbolti.net
10.12.10 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Amir Mehica í Fjarðabyggð (Staðfest)

Amir Mehica í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Bosníski markvörðurinn Amir Mehica samþykkti í dag tveggja ára samning við Fjarðabyggð.
Amir hefur leikið með Haukum frá því árið 2005 en hann vildi fara frá félaginu í sumar eftir að hann missti sæti sitt í liðinu og eftir tímabilið varð ljóst að hann yrði ekki áfram í Hafnarfirðinum.

Þessi þrítugi leikmaður hefur nú samið við Fjarðabyggð þar sem hann fær það hlutverk að leysa Srdjan Rajkovic af hólmi en hann samdi við Þór í haust.

,,Amir er frábær fengur fyrir Fjarðabyggð og mun flytja hingað austur í lok febrúar ásamt fjölskyldu sinni,\" segir á heimasíðu Fjarðabyggðar.

Amir lék samanlagt 92 leiki með Haukum í Pepsi-deildinni, fyrstu deildinni og annarri deildinni.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.