Fotbolti.net
10.12.10 - 14:02
Magnús Már Einarsson

Davíð Birgisson í Hauka (Staðfest)

Davíð í leik með Selfyssingum.

Davíð í leik með Selfyssingum.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Framherjinn ungi Davíð Birgisson hefur gengið til liðs við Hauka en hann samdi við félagið í vikunni.
Davíð hefur æft með Haukum undanfarið en hann skoraði meðal annars tvívegis í æfingaleik gegn KFG í vikunni.

Þessi tvítugi leikmaður er uppalinn hjá KR en í sumar var hann í láni hjá Selfyssingum.

Þar skoraði hann tvö mörk í Pepsi-deildinni og eitt mark í VISA-bikarnum.

,,Við bjóðum Davíð Birgissyni velkomin í Hauka og óskum honum vel farnaðar bæði innan sem og utan knattspyrnuvallarins,\" segir á heimasíðu Hauka.

Heimild: Heimasíða Hauka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.