Fotbolti.net
11.01.11 - 16:06
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Hörður Björgvin Magnússon lánaður til Juventus (Staðfest)

Hörður Björgvin Magnússon

Hörður Björgvin Magnússon

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Hörður Björgvin Magnússon úr Fram hefur verið lánaður út tímabilið til ítalska stórliðsins Juventus en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Hörður, sem er 17 ára gamall miðjumaður hélt út til Torino á Ítalíu núna á sunnudag og skrifaði í kjölfarið undir lánssamning við Juventus í dag, en félagið hefur möguleika á að kaupa hann á meðan lánssamningurinn stendur yfir.

Hann skoðaði aðstæður hjá Juventus í byrjun nóvember, en fyrst heyrði hann af áhuga félagsins í ágúst. Í kjölfarið fékk Fram sent beiðni frá ítalska stórliðinu um að liðið vildi fá Hörð á láni og hófst því pappírsvinnan en ljóst var í lok nóvember að hann yrði lánaður til félagsins.

Þá mun Hörður fá númer hjá aðalliði Juventus. Hörður fær númerið 77 en æfir einungis með varaliðinu til að byrja með.

Hörður hefur farið á reynslu hjá fjölda stórliða, en þar má nefna Everton, Sunderland, Stabæk, AZ Alkmaar og þá var hann orðaður einnig við lið frá Ítalíu á borð við Fiorentina, Ascoli og AC Milan.

Hörður á að baki 18 landsleiki með U17, U18 og U19 ára liði Íslands, en hann var fyrirliði bæði U17 og U18 ára liðsins. Þá hefur hann spilað sex leiki fyrir Fram í Pepsi-deildinni undanfarin tvö tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.