11.01.11 - 09:07
Hafliði Breiðfjörð
Ronaldinho til Flamengo (Staðfest)

Ronaldinho er farinn til Flamengo.

Mynd: Getty Images

Ronaldinho er farinn til Flamengo.

Mynd: Getty Images
Brasilíski framherjinn Ronaldinho er genginn til liðs við Flamengo í heimalandi sínu og þar með er endanlega ljóst að Blackburn mun ekki hreppa leikmanninn eins og þeir vonuðust eftir.
Ronaldinho sem er þrítugur hafði komið til AC Milan frá Barcelona árið 2008 en komst að samkomulagi við ítalska félagið um að fara núna.
Hann hafði einnig verið orðaður við Gremio og Palmeiras í Brasilíu en samdi svo við Flamengo til 2014.
Nýir eigendur Blackburn höfðu mikinn hug á að fá leikmanninn og buðu honum 20 milljónir punda fyrir þriggja ára samning, en allt kom fyrir ekki, hann fór til Flamengo.

Heimild: BBC