11.02.11 - 11:05
Magnús Már Einarsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í ÍBV (Staðfest)

Gunnar Heiðar verður númer 10 hjá ÍBV. Hér er hann við undirskriftina í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍBV en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Gunnar mun leika í treyju númer tíu hjá Eyjaliðinu.
Þetta er feykilega mikill liðsstyrkur fyrir ÍBV sem ætlar greinilega að gera aðra atlögu að Íslandsmeistaratitlinum en liðið hafnaði í þriðja sæti síðasta sumar.
Gunnar hefur verið í atvinnumennskunni síðan haustið 2004 og spilað með Halmstad, Hannover 96, Valerenga, Esbjerg, Reading og Fredrikstad. Síðast var þessi 28 ára gamli leikmaður á mála hjá Esbjerg í Damnörku en hann losnaði undan samningi þar í síðustu viku.
Alls hefur Gunnar leikið 83 leiki fyrir ÍBV í deild og bikar og skorað í þeim 39 mörk. Auk þess hefur hann leikið 22 A-landsleiki og skorað í þeim 5 mörk.
Gunnar Heiðar er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Eyjamenn í vetur en áður höfðu Brynjar Gauti Guðjónsson komið frá Víkingi Ólafsvík, Guðmundur Þórarinsson frá Selfossi og Ian Jeffs frá Val.
Rætt verður við Gunnar Heiðar í viðtali á Fótbolta.net síðar í dag.