11.02.11 - 14:02
Hafliði Breiðfjörð
Elisa Berzins í kvennalið KR (Staðfest)
Tveir leikmenn til viðbótar á reynslu hjá liðinu

Elisa Berzins er komin til KR.

Mynd: KR

Elisa Berzins er komin til KR.

Mynd: KR

Kvennalið KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild kvenna því hin bandaríska Elisa Berzins er gengin í raðir félagsins frá Iowa State.
Þetta staðfesti Björgvin Karl Gunnarsson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag en Berzins er 23 ára gömul. Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allstaðar á miðjunni og sem miðvörður.

,,Hún er mikil íþrótta kona og öflugur leikmaður. KR bindur miklar vonir við Elisu þar sem ekki er engöngu um góðan leikmann að ræða heldur er hún einnig mikil leiðtogi. Og mun styrkja KR liðið verulega,\" sagði Björgvin Karl við Fótbolta.net.
KR-ingar eru þó ekki hættir að styrkja leikmannahóp sinn og tveir erlendir leikmenn eru væntanlegir til landsins og æfa með liðinu í næstu viku.
Þær heita Katie Smith sem er bandarískur varnarmaður og Erica Baso sem er kanadískur sóknarmaður. Þær munu væntanlega spila æfingaleik með KR gegn ÍBV 18. febrúar næstkomandi.
Katrín Ásbjörnsdóttir framherji KR meiddist í leik með liðinu á dögunum og óttast var að meiðslin væru slæm.
Björgvin Karl sagði við Fótbolta.net að meiðslin hafi verið minniháttar og hún er klár í slaginn að nýju. Hún missti hinsvegar af leiknum gegn Þrótti í gær vegna veikinda.