11.03.11 - 07:49
Magnús Már Einarsson
Kjartan Páll Þórarinsson í Völsung (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Völsungur frá Húsavík hefur fengið markvörðinn Kjartan Pál Þórarinsson til liðs við sig.
Kjartan Páll var á síðasta ári varamarkvörður hjá Þrótti en hann kom ekkert við sögu í fyrstu deildinni.
Þessi 29 ára gamli leikmaður stóð áður á milli stanganna hjá Aftureldingu frá 2007-2009 og þar áður lék hann með ÍR og Sindra.
Hjá Völsungi mun Kjartan berjast við Steinþór Má Auðunsson um markvarðarstöðuna.