11.03.11 - 07:00
Elvar Geir Magnússon
Steinar Örn og Halldór Bogason í Aftureldingu (Staðfest)

Steinar Örn Gunnarsson og Halldór Bogason.

Mynd: Afturelding

Afturelding sem leikur í 2. deild hefur fengið tvo leikmenn að láni. Það eru Steinar Örn Gunnarsson markvörður frá Fjölni og Halldór Bogason varnarmaður frá KR.
Báðir eru þeir fæddir 1991 og munu líklega koma við sögu í kvöld þegar Afturelding mætir Reyni Sandgerði í Lengjubikarnum.
Þess má geta að Steinar var í íslenska landsliðshópnum í Futsal fyrr á árinu en hann á að baki einn leik með U19 landsliði Íslands.
Hann hefur þó ekki leikið meistaraflokksleik á Íslandsmóti og það sama á við um Halldór en hann getur einnig leikið sem miðjumaður.
Afturelding hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar í fyrra.