Fotbolti.net
11.03.11 - 11:02
Magnús Már Einarsson

Ágúst Örn, Elvar Páll og Hafþór Þrastar í KA (Staðfest)

Hafþór Þrastarson.

Hafþór Þrastarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

KA hefur fengið Ágúst Örn Arnarson, Elvar Pál Sigurðsson og Hafþór Þrastarson á láni.
Hafþór er tvítugur varnarmaður úr FH en hann lék átta leiki með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.

Þá spilaði Hafþór einnig tvo leiki með FH-ingum í VISA-bikarnum á síðasta tímabili.

Ágúst Örn og Elvar Páll koma báðir á láni frá Breiðablik en þeir eru fæddir 1991 og voru að ganga upp úr öðrum flokki síðastliðið haust.

Ágúst Örn, sem er framherji, var í láni hjá Fjarðabyggð sumarið 2009 þar sem hann skoraði fjögur mörk í 13 deildar og bikarleikjum.

Elvar Páll, sem er framliggjandi miðjumaður, kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari síðastliðið sumar.

Leikmennirnir koma á Akureyri í dag og verða með KA þegar liðið mætir Blikum í Lengjubikarnum á sunnudag en þar munu Ágúst Örn og Elvar Páll mæta félögum sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.