Fotbolti.net
11.03.11 - 12:27
Magnús Már Einarsson

Kieron Dyer til Ipswich á láni (Staðfest)

Kieron Dyer til Ipswich á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kieron Dyer, miðjumaður West Ham, hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Ipwcih á láni í mánuð.
Dyer ólst upp hjá Ipswish og steig sín fyrstu skref með aðalliði félagsins aðeins 17 ára gamall.

Eftir þrjú timabil með aðalliði Ipswich fór Dyer síðan til Newcastle þar sem hann var í átta ár áður en hann gekk í raðir West Ham árið 2007.

Dyer hefur verið ótrúlega óheppinn með meiðsli á ferlinum en hann tvífótbrotnaði á fyrsta mánuði sínum hjá West Ham. Í vetur hefur Dyer leikið 13 leiki með West Ham sem er það mesta á einu tímabili með liðinu hingað til en hann hefur hins vegar ekki komið við sögu siðan í janúar.

Því var Avram Grant stjóri West Ham tilbúinn að leyfa honum fara til Ipswich á láni í mánuð til að komast í leikform.

Heimild: Heimasíða West Ham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.