Fotbolti.net
11.03.11 - 17:05
Magnús Már Einarsson

Felix Hjálmarsson í Fjölni (Staðfest)

Felix Hjálmarsson í Fjölni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur fengið Felix Hjálmarsson til liðs við sig en hann kemur til félagsins frá Fylki.
Felix, sem er tvítugur, getur leikið bæði í fremstu víglínu sem og í vörninni.

Í fyrra var hann í láni hjá Fjarðabyggð þar sem hann kom við sögu í fimmtán leikjum í fyrstu deildinni.

Sumarið 2009 spilaði Felix tvo leiki með Fylkismönnum í Pepsi-deildinni.

Samningur hans við Fylki rann út um áramót og í kjölfarið æfði hann með HK og síðan Fjölni.

Felix er kominn með leikheimild með Fjölni og getur því spilað með liðinu gegn ÍBV í Lengjubikarnum á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.