Fotbolti.net
11.03.11 - 15:01
Magnús Már Einarsson

Andri Júlíusson í Fram (Staðfest)

Andri Júlíusson í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Júlíusson hefur gengið til liðs við Fram en hann mun skrifa undir tveggja ára samning við félagið síðar í dag.
Þessi 25 ára gamli framherji yfirgaf uppeldisfélag sitt ÍA á dögunum og í kjölfarið höfðu þrjú félög samband við hann. Andri ákvað á endanum að velja Fram en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.

,,Þorvaldur (Örlygsson, þjálfari Fram) leggst vel í mig og þetta er flottur hópur. Það eru allir á svipuðum aldi fyrir utan kannski Arnar Gunnlaugs og þetta er spennandi,\" sagði Andri við Fótbolta.net í dag en hann er spenntur fyrir því að spila í Pepsi-deildinni á nýjan leik.

,,Það var aðalástæðan fyrir því að ég ákvað að breyta til. Ég vil spila í úrvalsdeildinni þar sem er betri umfjöllun og betri umgjörð.\"

Andri hefur leikið með ÍA allan sinn feril fyrir utan síðari hluta tímabilsins 2008 þegar hann var í láni hjá KA. Á ferli sínum í meistaraflokki hefur Andri leikið 111 leiki í deild og bikar með ÍA og KA og skorað 32 mörk.

Andri gæti leikið sinn fyrsta mótsleik með Fram þegar liðið mætir Leikni R. í Lengjubikarnum á sunnudagskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.