11.11.10 - 20:02
Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Freyr Bjartþórsson í Breiðablik (Staðfest)

Hilmar Freyr í leik með Fjarðabyggð í sumar.

Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson

Hilmar Freyr Bjartþórsson gekk í dag í raðir Íslandsmeistara Breiðabliks frá Fjarðabyggð og fær leikheimild með félaginu þegar félagaskiptaglugginn opnar 20. febrúar næstkomandi.
Þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall hefur Hilmar Freyr spilað meistaraflokksleiki frá árinu 2006 er hann var hjá Leikni Fáskrúðsfirði. Þá kom hann inná í leik gegn Neista þremur dögum eftir 14 ára afmælisdaginn sinn.
Hann hafði spilað fjóra leiki með Fjarðabyggð í 1. deildinni sumarið 2009 en annars með Leikni níu leiki það sumar.
Á nýliðinni leiktíð spilaði hann svo 23 leiki með Fjarðabyggð í 1. deildinni og VISA-bikarnum og skoraði þrjú mörk.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Breiðabliks eftir að tímabilinu lauk. Áður kom Viktor Unnar Illugason frá Breiðablik og Arnar Már Björgvinsson frá Stjörnunni.