Fotbolti.net
11.11.10 - 07:03
Hafliði Breiðfjörð

Emil Pálsson og Ingimar Elí í FH (Staðfest)

Emil Pálsson er farinn í FH.

Emil Pálsson er farinn í FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Pálsson fyrirliði BÍ/Bolungarvíkur er genginn í raðir bikarmeistara FH og það sama má segja um Ingimar Elí Hlynsson leikmann KS/Leifturs.
Báðir eru enn gjaldgengir í 2. flokk FH og léku með 2. flokknum í Faxaflóamótinu gegn Aftureldingu í gærkvöldi.

Emil Pálsson er 17 ára gamall og bar fyrirliðabandið hjá BÍ/Bolungarvík þegar liðið tryggði sér sæti í 1. deild karla í sumar með því að enda í öðru sæti 2. deildar.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn með uppeldisfélagi sínu, BÍ/Bolungarvík árið 2008 og hefur síðan þá leikið 46 leiki með liðinu og skorað í þeim fimm mörk. Hann hefur leikið 10 leiki með U17 og U18 ára landsliðum Íslands og skorað tvö mörk í þeim leikjum.

Ingimar Elí er 18 ára gamall og hóf meistaraflokksferil sinn með KS/Leiftri í sumar. Hann átti fast sæti í liðinu, spilaði 23 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark. Hann spilaði tvo leiki með U19 ára landsliði Íslands í síðasta mánuði.

FH hefur þar með fengið til sín fjóra leikmenn frá því síðustu leiktíð lauk því áður höfðu Hólmar Örn Rúnarsson komið frá Keflavík og Gunnar Kristjánsson úr KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.