11.11.10 - 10:46
Magnús Már Einarsson
Paul McShane í Grindavík (Staðfest)

Paul í leik með Grindavík árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Paul í leik með Grindavík árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoski miðjumaðurinn Paul McShane hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík en hann kemur til félagsins frá Keflavík.
Segja má að McShane sé kominn heim því hann hóf feril sinn á Íslandi árið 1998 með Grindavík og lék með liðinu í tíu ár.
Hann gekk í raðir Fram 2008 þar sem hann spilaði í tvö ár en síðasta sumar lék hann með Keflavík.
Paul lék fjórtán leiki með Keflavík en hann missti af lokasprettinum síðastliðið sumar vegna meiðsla.
Paul er 32 ára gamall. Hann hefur leikið 232 leiki í deild og bikar á Íslandi og hefur skorað í þeim 37 mörk.