12.01.11 - 11:08
Magnús Már Einarsson
Darren Ferguson tekinn við Peterborough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Darren Ferguson hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Peterborough United.
Ferguson þekkir mjög vel til hjá félaginu því hann tók við Peterborough árið 2007 og kom liðinu upp um tvær deildir.

Hann yfirgaf félagið fyrir 14 mánuðum síðan og tók í kjölfarið við liði Preston en hann var rekinn þaðan fyrir tveimur vikum.
Eftir að Gary Johnson fór frá Peterborough í fyrradag þá ákvað félagið síðan að ráða Ferguson aftur sem knattspyrnustjóra.
Ferguson, sem er sonur Sir Alex Ferguson, mun núna reyna að hjálpa Peterborough að komast upp í Championship deildinni á nýjan leik en liðið er í fimmta sæti í ensku fyrstu deildinni sem stendur.

Heimild: BBC