Fotbolti.net
12.01.11 - 17:45
Hafliði Breiðfjörð

Garðar Eðvaldsson í Njarðvík (Staðfest)

Garðar Eðvaldsson í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvík, sem leikur í annarri deild í sumar, hefur fengið varnarmanninn Garðar Eðvaldsson til liðs við sig frá Víði Garði.
Garðar, sem er 22 ára, er uppalinn hjá Keflavík en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Njarðvík.

Árið 2008 lék Garðar með Reyni Sandgerði á láni og 2009 lék hann með Víkingi Ólafsvík.

Síðastliðið sumar lék Garðar síðan með Víði Garði í annarri deildinni en samtals á hann að baki 58 leiki með þessum félögum í 1. og 2. deild ásamt bikarkeppni.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.