Fotbolti.net
12.01.11 - 15:00
Magnús Már Einarsson

John Jensen ráðinn aðstoðarstjóri Blackburn (Staðfest)

John Jensen ráðinn aðstoðarstjóri Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

John Jensen, fyrrum miðjumaður Arsenal, hefur verið ráðinn aðstoðarknattspyrnustjóri hjá Blackburn Rovers.

Þessi 45 ára gamli Dani mun vera aðstoðarmaður Steve Kean sem tók við stjórnartaumunum hjá Blackburn í síðasta mánuði.
John \"Faxe\" Jensen lék á sínum 130 leiki með Arsenal.

Þá lék hann 69 landsleiki með Dönum og skoraði meðal annars gegn Þjóðverjum í úrslitaleik EM 1992.

Jensen hefur áður verið aðstoðarþjálfari hjá Bröndby og Getafe auk þess sem hann stýrði Randers árið 2009.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.