Fotbolti.net
12.01.11 - 20:27
Hörður Snævar Jónsson

Wayne Bridge á láni til West Ham (Staðfest)

Wayne Bridge á láni til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wayne Bridge varnarmaður Manchester City hefur verið lánaður til West Ham.
Hann mun vera hjá West Ham út þessa leiktíð og gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Arsenal um helgina.

,,Það er frábært að fá að hjálpa West Ham í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði Bridge.

Þessi enski varnarmaður kom til City fyrir tveimur árum en hefur aðeins leikið þrjá leiki á þessari leiktíð.

West Ham er í mikilli fallbaráttu og koma Bridge mun að öllum líkindum styrkja liðið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.